Fréttir

Búningar sumarsins
Knattspyrna | 23. apríl 2013

Búningar sumarsins

Búið er að ákveða hvernig búningar meistaraflokks karla verða í sumar og eru þeir aðeins breyttir frá því sem verið hefur síðustu ár.  Liðið mun áfram leika í dökkbláum peysum en buxur og sokkar verða hvítir.  Með þessu er horfið aftur til upphafsins en búningur liðsins var þannig á upphafsárum þess og aftur upp úr 1990.  Keflavík lék einmitt í svörtum peysum og hvítum buxum þegar liðið varð Íslandsmeistari árin 1964, 1969 og 1971.  Einnig er hugmyndin að breyta til og létta aðeins yfir búningnum miðað við það sem verið hefur.  Varabúningurinn verður algulur en sá búningur var tekinn í notkun í fyrrasumar.

Á myndinni hér að neðan er Þórólfur „Dói“ Þorsteinsson búningafrömuður liðsins sem er hæstánægður með að aðeins sé orðið bjartara yfir búningnum.  Það eru svo ofurfyrirsæturnar Hörður og Bojan sem sýna útlit Keflavíkurliðsins í sumar.