Fréttir

Búningur sumarsins
Knattspyrna | 29. apríl 2015

Búningur sumarsins

Þá er búningur sumarsins tilbúinn en meistaraflokkur karla spilar í svörtum peysum, hvítum buxum og hvítum sokkum eins og í fyrra.  Varabúningurinn verður hins vegar alhvítur.  Gulu varabúningarnir eru svo enn til og verður gripið til þeirra ef á þarf að halda.  Eins og í fyrra leikur Keflavík í búningum frá Nike.

Það eru þeir Magnús Þórir og Einar Orri sem tóku að sér fyrirsætuhlutverkið að þessu sinni en myndirnar tók Jón Örvar Arason.