Byrjað gegn Fylki
Búið er að raða leikjum niður á umferðir í Pepsi-deildinni næsta sumar og það kemur í okkar hlut að byrja á tveimur útileikjum. Fyrsti leikurinn verður gegn Fylki í Árbænum og má reikna með að hann verði 6. maí. Síðan er komið að útileik gegn Grindavík og fyrsti heimaleikurinn verður svo gegn Stjörnunni í 3. umferðinni. Í síðustu umferð deildarinnar heimsækja okkar menn KR-inga í Vesturbæinn. Hægt er að sjá leikjaniðurröðunina í Pepsi-deildinni á vef KSÍ.
Úr leik Fylkis og Keflavíkur í Árbænum.