Fréttir

Knattspyrna | 8. júní 2011

Daníel skrifar undir

Daníel Gylfason skrifaði á dögunum undir leikmannasamning við Keflavík en hann kemur einmitt úr hinum stóra hópa efnilegra leikmanna okkar sem hafa verið að gera góða hluti með 2. flokki.  Daníel er fæddur árið 1993 og er mjög teknískur miðju- og sóknarmaður sem hefur verið að koma sterkur inn í vetur. 

Það hefur verið stefna félagsins að gera samninga við okkar ungu og efnilegu leikmenn sem munu leika stórt hlutverk hjá Keflavíkurliðinu næstu ár.  Þess má geta að 2. flokkur vann Faxaflóamótið með glæsibrag og er nú í harðri baráttu í Íslandsmótinu og bikarkeppni 2. flokks