Fréttir

Knattspyrna | 22. apríl 2006

Danny Severino skrifar undir

Ástralinn Danny Severino hefur skrifað undir tveggja ára samning við Keflavík.  Danny var til reynslu í æfingarferð liðsins á Spáni og var í framhaldinu boðinn samningur hjá félaginu.  Danny er miðjumaður og leikur þar yfirleitt vinstra megin.  Hann hefur víða farið og m.a. leikið með Millwall á Englandi og Piacenza á Ítalíu.  Við bjóðum Danny velkominn í hópinn.

Mynd: Jón Örvar Arason