David Preece til Keflavíkur
Markvörðurinn David Preece er kominn til liðs við Keflavík og hefur gert þriggja mánaða samning sem hægt er að framlengja. Markverðir okkar hafa verið að glíma við meiðsli og mun Árni Freyr Ásgeirsson ekkert verða með í sumar en Ómar Jóhannsson er nýbyrjaður að leika eftir að hafa jafnað sig af meiðslum.
David Preece er 36 ára gamall og hóf feril sinn í heimabæ sínum Sunderland. Hann var á mála hjá Sunderland en lék ekki með aðalliði félagsins. Síðan hefur hann leikið með Darlington, Aberdeen og dönsku liðunum Silkeborg IF og OB. Þess má geta að þeir Hörður Sveinsson og Hólmar Örn Rúnarsson voru liðsfélagar David hjá Silkeborg. Hann lék síðan með Barnsley og í vetur lék David nokkra leiki með Lincoln í ensku utandeildinni.
Við bjóðum David velkominn í hópinn.