Fréttir

Knattspyrna | 1. maí 2012

Denis Selimovic til Keflavíkur

Nýr leikmaður hefur gengið til liðs við okkur fyrir komandi tímabil en hann heitir Denis Selimovic.  Denis er frá Slóveníu og er 32 ára gamall en hann hefur gert samning við Keflavík út þetta tímabil.  Hann leikur sem miðjumaður en hefur einnig leikið í vörninni á sínum ferli.  Denis hefur leikið með nokkrum liðum í Slóveníu og eitt ár í Bosníu en hann lék með Ålesund í Noregi á árunum 2007-2009.  Við bjóðum Denis velkominn til Keflavíkur.


Denis á æfingu í Vík.
(Mynd: Jón Örvar)