Dómaranámskeið á mánudag
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá Keflavík í ráðstefnusal Íþróttaakademíu á móti Reykjaneshöll mánudaginn 21. mars kl. 19:00. Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Keflavík og hefst kl. 19:30. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi ca. viku síðar.
Námskeiðið er ókeypis.
Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
Kv. Dómarastjórinn