Dómaranámskeið á miðvikudag
Við minnum á knattspyrnudómaranámskeiðið sem verður haldið miðvikudaginn 15. febrúar kl. 17:30 í félagsheimili Keflavíkur við Sunnubraut. Allir eru velkomnir og ekki þarf að greiða þátttökugjald. Þetta er gott tækifæri fyrir áhugasama til að kynnast starfi knattspyrnudómara og upplagt fyrir þá sem hafa áhuga á að leggja dómarastörf fyrir sig.