Fréttir

Knattspyrna | 19. janúar 2009

Dómaranámskeið í K-húsinu á miðvikudag

Unglingadómaranámskeið hjá Keflavík verður haldið í K-húsinu miðvikudaginn 21. janúar  kl. 18:00.  Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki.

Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Námskeiðið er ókeypis.