Fréttir

Knattspyrna | 7. nóvember 2011

Einar Orri framlengir

Einar Orri Einarsson hefur framlengt samning vinn við Keflavík og verður hjá félaginu næstu þrjú ár.  Einar Orri er nýorðinn 22 ára en á að baki sjö keppnistímabil með meistaraflokki Keflavíkur.  Einar hefur leikið 68 deildarleiki, 11 bikarleiki og fjóra Evrópuleiki og hefur skorað eitt mark en það kom gegn Stjörnunni í Pepsi-deildinni í sumar.  Einar Orri hefur venjulega leikið aftarlega á miðjunni en seinnihluta síðasta tímabils færði hann sig í miðvörðinn og stóð sig þar einnig með prýði.