Fréttir

Einar Orri og Grétar Atli í bann
Knattspyrna | 28. júní 2012

Einar Orri og Grétar Atli í bann

Þá eru nokkrar umferðir að baki í Pepsi-deildinni og það þýðir að leikmenn eru búnir að safna þó nokkrum gulum og rauðum spjöldum.  Leikmenn fá eins leiks bann þegar þeir hafa fengið fjögur gul spjöld og tveir leikmanna okkar eru komnir í þann hóp.  Það eru þeir Einar Orri Einarsson og Grétar Atli Grétarsson sem geta þá ekki leikið gegn Selfossi næsta mánudag.  En maður kemur í manns stað og við byrjum með ellefu leikmenn í þeim leik eins og öðrum...