Fréttir

Elías Már framlengir
Knattspyrna | 21. ágúst 2013

Elías Már framlengir

Elías Már Ómarsson hefur framlengt samning sinn við Keflavík og er nú samningsbundin félaginu til loka keppnistímabilsins 2015.  Þetta eru ánægjulegar fréttir enda er pilturinn einn af okkar alefnilegustu leikmönnum.

Elías Már er 18 ára gamall sóknarmaður og lék sinn fyrsta leik í efstu deild síðasta suimar.  Hann hefur síðan verið fastamaður í Keflavíkurliðinu í sumar og hefur nú leikið 14 leiki í efstu deild og skorað eitt mark.  Elías Már á einnig að baki leiki með U-17 og U-19 ára landsliðum Íslands.