Fréttir

Knattspyrna | 3. október 2011

Elías Már í U-17 ára liðinu

Elías Már Ómarsson er í U-17 ára landsliðshópi Íslands sem leikur í undankeppni Evrópumótsins í Ísrael 12.-17. október.  Elías Már er fæddur árið 1995 og leikur með 3. flokki Keflavíkur.  Hann lék með íslenska U-17 ára liðinu sem varð Norðurlandameistari fyrr í sumar.  Við óskum Elíasi og félögum hans góðs gengis í Ísrael.