Fréttir

Elías Már í U-19 ára liðinu
Knattspyrna | 26. febrúar 2014

Elías Már í U-19 ára liðinu

Elías Már Ómarsson er í U-19 ára landsliðshópi sem mætir Svíum í tveimur æfingaleikjum.  Leikirnir verða í Kórnum þriðjudaginn 4. mars og í Egilshöll fimmtudaginn 6. mars.  Elías Már er 19 ára gamall og hefur þegar leikið 8 leiki með U-19 ára landsliðinu og skorað í þeim tvö mörk.  Hann hefur leikið 17 leiki fyrir Keflavík í efstu deild og skorað tvö mörk.

Þess má geta að Keflvíkingurinn Samúel Kári Friðjónsson er einnig í landsliðshópnum.

Við óskum þeim félögum góðs gengis í leikjunum framundan.