Elías Már með U-17 ára liðinu
Elías Már Ómarsson er í leikmannahópi Íslands fyrir úrslitakeppni Evrópumóts U17 landsliða í Slóveníu 4.-16. maí. Ísland er þar í riðli með Frakklandi, Georgíu og Þýskalandi og eru fyrstu mótherjarnir Frakkar. Elías Már er fæddur 1995 og hefur þegar leikið sjö leiki með U-17 ára liðinu en hann tók þátt í undankeppninni í Ísrael fyrr í vetur. Við óskum Elíasi og félögum hans í landsliðinu góðs gengis á mótinu.