Fréttir

Elías Már með U-19 ára liðinu
Knattspyrna | 15. júlí 2012

Elías Már með U-19 ára liðinu

Elías Már Ómarsson er í U-19 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í alþjóðlegu móti í Svíþjóð dagana 16.-22. júlí.  Kristinn R. Jónsson þjálfari hefur valið 20 manna hóp til að taka þátt en auk Íslands leika Svíþjóð, Noregur og Rúmenía á mótinu.

Elías Már er fæddur árið 1995 og leikur með 2. flokki Keflavíkur.  Hann er einn af okkar efnilegustu leikmönnum og hefur þegar gert leikmannasamning við félagið.  Elías hefur þegar leikið níu leiki með U-17 ára landsliðinu og skorað eitt mark.

Við óskum Elíasi Má og félögum hans góðs gengis á mótinu ytra.