Fréttir

Elías Már með U-19 ára liðinu
Knattspyrna | 27. maí 2014

Elías Már með U-19 ára liðinu

Elías Már Ómarsson er nú með U-19 ára landsliðinu á Írlandi þar sem liðið leikur í milliriðli Evrópukeppninnar.  Íslenska liðið leikur gegn Írum á miðvikudag, gegn Serbum á föstudaginn og síðan gegn Tyrkjum næsta mánudag.  Elías Már verður því ekki með Keflavík í bikarleiknum gegn Augnabliki og leiknum gegn Fjölni í Pepsi-deildinni.  Keflvíkingurinn Samúel Kári Friðjónsson er einnig í hópnum en hann leikur með Reading á Englandi.

Við óskum Elíasi og félögum hans góðs gengis.