Fréttir

Elías Már og Samúel Kári í U-19 ára liðinu
Knattspyrna | 12. febrúar 2013

Elías Már og Samúel Kári í U-19 ára liðinu

Keflvíkingarnir Elías Már Ómarsson og Samúel Kári Friðjónsson eru í U-19 ára landsliðshópnum sem mætir Dönum í tveimur vináttulandsleikjum 19. og 21. febrúar.

Elías Már er fæddur árið 1995 og hefur þegar leikið þrjá leiki með U-19 ára liðinu og skorað í þeim tvö mörk.  Þá lék hann níu leiki með U-17 ára landsliðinu og skoraði þar eitt mark.  Elías lék sinn fyrsta leik í efstu deild fyrir Keflavík síðasta sumar.

Samúel Kári er fæddur 1996 og á að baki 11 leiki og tvö mörk með U-17 ára landsliðinu.  Hann var í leikmannahópi Keflavíkur í Pepsi-deildinni síðasta sumar en lék ekki.

Þess má geta að sjúkraþjálfari U-19 ára liðsins er Keflvíkingurinn Gunnar Örn Ástráðsson.

Við óskum piltunum og félögum þeirra í landsliðinu góðs gengis í leikjunum framundan.