Fréttir

Knattspyrna | 16. apríl 2012

Elías og Samúel í U-17 ára hópnum

Þeir Elías Már Ómarsson og Samúel Kári Friðjónsson eru báðir í undirbúningshópi  fyrir úrslitakeppni Evrópumóts U17 landsliða í Slóveníu 4.-16. maí.  Gunnar Guðmundsson hefur valið 22 leikmenn sem munu æfa 19.-29. þessa mánaðar.  Elías Már er fæddur 1995 og hefur þegar leikið sjö leiki með U-17 ára liðinu en hann tók þátt í undankeppninni í Ísrael fyrr í vetur.  Samúel Kári er fæddur árið 1996 og lék fjóra leiki með U-17 ára landsliðinu í fyrra.  Við óskum piltunum og félögum þeirra í landsliðinu góðs gengis.


Elías Már og Samúel Kári.