Fréttir

Elís tekur við kvennaliðinu
Knattspyrna | 18. apríl 2013

Elís tekur við kvennaliðinu

Snorri Már Jónsson er hættur sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Keflavík.  Snorri tók við liðinu á síðasta ári en hefur nú ákveðið að hætta störfum.  Knattspyrnudeild þakkar Snorra samstarfið og framlag hans til deildarinnar.

Elís Kristjánsson hefur tekið við þjálfun liðsins tímabundið.  Hann hefur starfað lengi sem þjálfari hjá Keflavík og meðal annars þjálfað yngri flokka kvenna í mörg ár.  Elís mun nú þjálfa lið meistaraflokks næstu mánuði eða þar til annað verður ákveðið.