Enn einn stórsigurinn hjá stelpunum
Kvennaliðið heldur áfram sigurgöngu sinni í 1. deildinni og í gærkvöldi sigruðu þær Ægi í Þorlákshöfn 15-0. Þar með hafa stelpurnar unnið alla fjóra leiki sína í deildinni með markatölunni 38-0! Ólöf Helga Pálsdóttir skoraði þrennu í leiknum, Björg Ásta Þórðardóttir, Hrefna Magnea Guðmundsdóttir, Lilja Íris Gunnarsdóttir, Ágústa Jóna Heiðdal og Guðný Þórðardóttir skoruðu tvö mörk hver og Inga Lára Jónsdóttir og Ásdís Þorgilsdóttir þjálfari settu eitt stykki hvor. Þess má geta að þessi stórsigur er ekki stærsti sigur kvennaliðs Keflavíkur á Íslandsmóti; árið 1991 vann liðið 19-0 sigur á liði Stokkseyrar en Olga Færseth skoraði 9 mörk í þeim leik.
Liðið sem lék í Þorlákshöfn.
Myndina tók Þórður Þorbjörnsson.