Enn hrós fyrir Nettó-völlinn
Það hefur auðvitað ekki farið framhjá stuðningsmönnum Keflavíkur og öðrum gestum á Nettó-vellinum að völlurinn okkar hefur verið í toppstandi í sumar. Þrátt fyrir misjafnt veður hefur völlurinn staðist öll próf og allir heimaleikir okkar í sumar hafa svo sannarlega farið fram við bestu vallaraðstæður.
Fyrir skömmu var ráðstefna mannvirkjanefnda Norðurlandanna haldin hér á landi og heimsóttu nefndirnar knattspyrnuvelli og fræddust um uppbyggingu þeirra og ástand. Hópurinn kom m.a. á Nettó-völlinn og var þar sagt frá vellinum og endurbyggingu hans árið 2010. Gestunum þótti vel hafa tekist til og hrifust af vellinum og uppbyggingu hans.
Við getum verið ánægð með völlinn okkar og þær jakvæðu umsagnir sem hann fær og rétt að hrósa Sævari Leifssyni vallarstjóra og hans fólki fyrir frábært starf í sumar.