Fréttir

Knattspyrna | 27. júní 2007

Evrópudrátturinn á föstudag

Á föstudaginn verður dregið í 1. umferð í undankeppni Evrópukeppni félagsliða, UEFA Cup, en Keflavík tekur þátt í þeirra keppni sem bikarmeistarar.  Drátturinn fer fram í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss.  Leikirnir í þessari umferð fara svo fram 19. júlí og 2. ágúst.

Í þessari umferð eru 74 lið og er þeim skipt í þrjá hópa eftir landssvæðum.  Við erum eitt af 28 liðum á Norðursvæðinu.  Liðunum á hverju svæði er skipt í tvo hópa og dragast lið úr hvorum hópi saman.  Skipt er í hópana eftir styrk landanna til að sterkustu liðin og lið frá sama landi dragist ekki saman.  Ísland er í lakari hópnum og því eru Keflavík og KR þar.  Í þessum hópi eru einnig Dungannon Swifts frá Norður-Írlandi og Etzella Ettelbrück frá Lúxemborg sem við höfum leikið við í Evrópukeppnum á síðustu tveimur árum.  Í sterkari hópnum eru einnig fyrrum andstæðingar okkar, Lilleström frá Noregi og Metalurgs Liepaja frá Lettlandi.

Hér má sjá hópana á Norðursvæðinu.  Keflavík er í hópi 2 og dregst því gegn liði í hóp 1.

Hópur 1
OB Odense (Danmörk)
Vålerengen IF (Noregur)
FC Midtjylland (Danmörk)
SK Brann Bergen (Noregur)
Lillestrøm SK (Noregur)
AIK Stockholm (Svíþjóð)
Helsingborg IF (Svíþjóð)
BK Häcken (Svíþjóð)
MyPa-47 (Finnland)    
Metalurgs Liepaja (Lettland)
Skonto Riga (Lettland)
Suduva Marijampole (Litháen)
Ekranas Panevezys (Litháen)
HJK Helsinki (Finnland)

Hópur 2
Haka Valkeakoski (Finnland)
Drogheda United (Írland)
St. Patrick's Athletic (Írland)
Keflavík (Ísland)            
KR (Ísland)
Trans Narva (Eistland)
Flora Tallinn (Eistland)
Dungannon Swifts (N-Írland)
Glentoran (N-Írland)
Carmarthen Town (Wales)
Rhyl FC (Wales)
Etzella Ettelbrück (Lúxemborg) 
B36 Torshavn (Færeyjar)
EB Streymur (Færeyjar)