Faxaflóameistarar 2. flokks
Sameiginlegt lið Keflavíkur og Njarðvíkur í 2. flokki karla varð á dögunum Faxaflóameistarar í fótbolta. Liðið tapaði aðeins einum leik í mótinu og sigraði bæði hjá A- og B-liðum. Margir af þessum drengjum hafa verið að æfa með meistaraflokkum félaganna og nokkrir hafa þegar spilað sína fyrstu meistaraflokksleiki. Þjálfarar liðsins eru þeir Unnar Stefán Sigurðsson og Ingi Þór Þórisson. Við óskum strákunum til hamingju með árangurinn.
Faxaflóamót - A-lið
Faxaflóamót - B-lið