Fréttir

Knattspyrna | 17. júlí 2009

FH - Keflavík á laugardag kl. 16:00

Það verður væntanlega hörkuleikur í Kaplakrika laugardaginn 18. júlí þegar FH og Keflavík mætast þar kl. 16:00.  Það þarf varla að taka fram að þarna mætast tvö efstu lið síðasta sumars sem háðu þar að auki æsispennandi baráttu um titilinn.  FH-ingar hafa svo haft mikla yfirburði í deildinni í sumar og aðeins tapað einum leik en það var einmitt fyrsti leikur sumarsins gegn Keflavík.  Dómari leiksins verður enginn annar en Jóhannes Valgeirsson og aðstoðardómarar þeir Áskell Þór Gíslason og Oddbergur Eiríksson.  Varadómari er Örvar Sær Gíslason og Ingi Jónsson er eftirlitsmaður KSÍ.  Fyrir þá sem ekki komast á völlinn má geta þess að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. 

Keflavík og FH hafa leikið 39 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1975.  Keflavík hefur unnið 10 leiki, FH hefur unnið 17 en jafntefli hefur orðið í 12 leikjum.  Markatalan er 51-59, FH-ingum í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 6-1 sigur árið 1976 en stærsta tap gegn FH kom árið 1993 þegar FH vann 5-1 í Hafnarfirði.  Sex leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn FH í efstu deild; Magnús Þorsteinsson hefur skorað fjögur mörk og þeir Hólmar Örn Rúnarsson, Símun Samuelsen, Guðmundur Steinarsson, Haukur Ingi Guðnason og Jóhann B. Guðmundsson hafa skorað eitt mark hver gegn FH.

Liðin hafa einnig mæst átta sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1972 en síðast í fyrrasumar.  Keflavík hefur unnið fjóra leik og FH þrjá en einum lauk með jafntefli.  Markatalan er 10-6 fyrir Keflavík.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað tvö bikarmörk gegn FH og Guðjón Árni Antoníusson eitt en þeir skoruðu báðir í bikarleiknum gegn FH-ingum í fyrra.

Nokkur tengsl hafa verið milli Keflavíkur og FH í gegnum árin.  Þess má geta að Albert Guðmundsson og sonur hans Ingi Björn þjálfuðu bæði liðin á sínum tíma.  Meðal leikmanna sem hafa leikið fyrir bæði liðin eru Þorsteinn Bjarnason, Jón Þorgrímur Stefánsson, Kristján Hilmarsson, Valþór Sigþórsson og bræðurnir Daníel og Grétar Einarssynir.

Úrslit í leikjum FH og Keflavíkur í efstu deild í Hafnarfirði hafa orðið þessi undanfarin ár:

2008 FH - Keflavík 3-2 Magnús Þorsteinsson 2
2007 FH - Keflavík 3-2 Baldur Sigurðsson
Marco Kotilainen
2006 

FH - Keflavík

2-1 Sjálfsmark
2005

FH - Keflavík

2-0
2004

FH - Keflavík

1-1 Sjálfsmark
2002

FH - Keflavík

0-0
2001

FH - Keflavík

2-2 Guðmundur Steinarsson
Þórarinn Kristjánsson
1995

FH - Keflavík

2-2 Róbert Sigurðsson 2
1994

FH - Keflavík

2-1 Ragnar Margeirsson
1993

FH - Keflavík

5-1 Kjartan Einarsson