FH - Keflavík á mánudag kl. 18:00
Það er stutt stórra högga á milli í Pepsi-deildinni og mánudaginn 3. september skreppa okkar menn í Hafnarfjörð og leik við topplið FH. Leikurinn hefst kl. 18:00 á Kaplakrikavelli. Fyrir leikinn er Keflavík í 6.-7. sæti deildarinnar með 24 stig en FH-ingar eru í efsta sætinu með 38 stig. Okkar menn eru vonandi búnir að ná sér niður eftir síðasta leik og mæta vel stemmdir í Hafnarfjörðinn. Hilmar Geir Eiðsson tekur út leikbann og þá getur Zoran þjálfari ekki stjórnað liðinu en þeir fengu báðir brottvísun í síðasta leik. Dómari leiksins verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og aðstoðardómarar þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson. Þórður Ingi Guðjónsson er svo eftirlitsmaður KSÍ.
Keflavík og FH hafa leikið 45 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1975. Keflavík hefur unnið 10 leiki, FH hefur unnið 20 en jafntefli hefur orðið í 15 leikjum. Markatalan er 60-74, FH-ingum í vil. Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 6-1 sigur árið 1976 en stærsta tap gegn FH kom árið 1993 þegar FH vann 5-1 í Hafnarfirði. Mesti markaleikur liðanna var á Kaplakrikavelli árið 2010 þegar FH vann 5-3. Þrír leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn FH í efstu deild; Magnús Þorsteinsson hefur skorað fimm mörk, Guðmundur Steinarsson þrjú og Jóhann B. Guðmundsson hefur gert eitt mark.
Liðin hafa einnig mæst níu sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1972 en síðast árið 2010. Bæði lið hafa unnið fjóra leiki en einum lauk með jafntefli. Markatalan er 12-9 fyrir Keflavík. Guðmundur Steinarsson hefur gert tvö bikarmörk gegn FH-ingum og Haraldur Freyr Guðmundsson eitt.
Fyrri leik liðanna á Nettó-vellinum lauk með 4-2 sigri FH. Guðmundur Steinarsson og Arnór Ingvi Traustason skoruðu mörk Keflavíkur en Atli Viðar Björnsson, Guðjón Árni Antoníusson, Hólmar Örn Rúnarsson og Atli Guðnason gerðu mörk FH.
Nokkur tengsl hafa verið milli Keflavíkur og FH í gegnum árin og nú leika fjórir fyrrverandi leikmenn okkar með FH-ingum, þeir Gunnleifur Gunnleifsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Guðjón Árni Antoníusson og Alen Sutej. Þess má geta að Albert Guðmundsson og sonur hans Ingi Björn þjálfuðu bæði liðin á sínum tíma. Meðal annarra leikmanna sem hafa leikið fyrir bæði liðin eru Þorsteinn Bjarnason, Jón Þorgrímur Stefánsson, Kristján Hilmarsson, Valþór Sigþórsson og bræðurnir Daníel og Grétar Einarssynir.
Úrslit í leikjum FH og Keflavíkur í Hafnarfirði hafa orðið þessi undanfarin ár:
2011 | FH - Keflavík | 1-0 | |
2010 | FH - Keflavík | 5-3 |
Haukur Ingi Guðnason Bjarni Hólm Aðalsteinsson Brynjar Örn Guðmundsson |
2009 | FH - Keflavík | 2-2 |
Guðjón Árni Antoníusson Magnús Þorsteinsson |
2008 | FH - Keflavík | 3-2 | Magnús Þorsteinsson 2 |
2007 | FH - Keflavík | 3-2 |
Baldur Sigurðsson Marco Kotilainen |
2006 | FH - Keflavík | 2-1 | Sjálfsmark |
2005 | FH - Keflavík | 2-0 | |
2004 | FH - Keflavík | 1-1 | Sjálfsmark |
2002 | FH - Keflavík | 0-0 | |
2001 | FH - Keflavík | 2-2 |
Þórarinn Kristjánsson Guðmundur Steinarsson |