Fréttir

Knattspyrna | 6. ágúst 2011

FH - Keflavík á sunnudag kl. 19:15

Eftir að hafa þurft að sitja hjá í síðustu umferð Pepsi-deilda vegna frestaðs leiks mæta okkar menn aftur í slaginn gegn FH-ingum í 14. umferð deildarinnar sunnudaginn 7. ágúst.  Leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli og hefst kl. 19:15.  Þar verður væntanlega hart barist enda eru FH-ingar að reyna að halda í við toppliðin á meðan Keflavík er að berjast við að rífa sig frá miðju deildarinnar og blanda sér í baráttuna um Evrópusæti.  Fyrir leikinn er Keflavík í 7.-8. sæti deildarinnar með 17 stig en FH er í 4. sæti með 22 stig.  Dómari leiksins verður gæðadrengurinn Erlendur Eiríksson, aðstoðardómarar þeir Halldór Breiðfjörð Jóhannsson og Eðvarð Eðvarðsson og varadómari verður Pétur Guðmundsson.  Björn Guðbjörnsson er eftirlitsmaður KSÍ.  Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Keflavík og FH hafa leikið 43 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1975.  Keflavík hefur unnið 10 leiki, FH hefur unnið 18 en jafntefli hefur orðið í 15 leikjum.  Markatalan er 58-69, FH-ingum í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 6-1 sigur árið 1976 en stærsta tap gegn FH kom árið 1993 þegar FH vann 5-1 í Hafnarfirði.  Mesti markaleikur liðanna var á Kaplakrikavelli í fyrra þegar FH vann 5-3.  Sex leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn FH í efstu deild; Magnús Þorsteinsson hefur skorað fimm mörk, Guðmundur Steinarsson og Jóhann B. Guðmundsson hafa gert tvö og þeir Grétar Hjartarson, Brynjar Örn Guðmundsson og Guðjón Antoníusson hafa skorað eitt mark hver gegn FH.

Liðin hafa einnig mæst níu sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1972 en síðast í fyrra.  Bæði lið hafa unnið fjóra leiki en einum lauk með jafntefli.  Markatalan er 12-9 fyrir Keflavík.  Guðmundur Steinarsson hefur gert tvö bikarmörk gegn FH-ingum og þeir Haraldur Freyr Guðmundsson og Guðjón Árni Antoníusson eitt hvor.

Liðin mættust fyrr í sumar á Nettó-vellinum og gerðu þá 1-1 jafntefli.  Matthías Vilhjálmsson kom FH yfir seint í leiknum en Grétar Hjartarson jafnaði í blálokin.

Keflavík hefur ekki sótt gull í greipar FH-inga í Hafnarfjörðinn undanfarin ár.  Síðasti útisigur okkar gegn FH kom árið 1980 þegar Sigurjón Sveinsson og Þórir Sigfússon skoruðu í 2-1 sigri.  Síðan hafa liðin mæst 16 sinnum í efstu deild á heimavelli FH-inga og hefur tíu leikjum lokið með sigri FH en sex með jafntefli.

Nokkur tengsl hafa verið milli Keflavíkur og FH í gegnum árin og nú leika þrír fyrrverandi leikmenn okkar með FH, þeir Hólmar Örn Rúnarsson, Alen Sutej og Gunnleifur Gunnleifsson.  Þess má geta að Albert Guðmundsson og sonur hans Ingi Björn þjálfuðu bæði liðin á sínum tíma.  Meðal leikmanna sem hafa leikið fyrir bæði liðin eru Þorsteinn Bjarnason, Jón Þorgrímur Stefánsson, Kristján Hilmarsson, Valþór Sigþórsson og bræðurnir Daníel og Grétar Einarssynir.

Úrslit í leikjum FH og Keflavíkur í efstu deild í Hafnarfirði hafa orðið þessi undanfarin ár:

2010 FH - Keflavík 5-3 Haukur Ingi Guðnason
Bjarni Hólm Aðalsteinsson
Brynjar Örn Guðmundsson
2009 FH - Keflavík 2-2 Guðjón Árni Antoníusson
Magnús Þorsteinsson
2008 FH - Keflavík 3-2 Magnús Þorsteinsson 2
2007 FH - Keflavík 3-2 Baldur Sigurðsson
Marco Kotilainen
2006 

FH - Keflavík

2-1 Sjálfsmark
2005

FH - Keflavík

2-0
2004

FH - Keflavík

1-1 Sjálfsmark
2002

FH - Keflavík

0-0
2001

FH - Keflavík

2-2 Guðmundur Steinarsson
Þórarinn Kristjánsson
1995

FH - Keflavík

2-2 Róbert Sigurðsson 2