Fimm Keflvíkingar í úrtakshópum
Fimm leikmenn Keflavíkur eru í úrtakshópum KSÍ hjá U-17 og U-16 drengja sem æfa helgina 15. og 16. mars.
Með U-17 liðinu hafa þeir Sindri Kristinn Ólafsson, Fannar Orri Sævarsson, Anton Freyr Hauksson og Samúel Þór Traustason verið valdir til æfingar. Sigurbergur Bjarnason er svo í hópnum hjá U-16 ára.
Við óskum þessum drengjum til hamingju með valið og vitum að þeir munu standa sig vel.
Á myndinni með fréttinni eru þeir Sindri, Anton og Fannar.