Fjölmenni og stemmning fyrir leiki
Við minnum á að stuðningsmenn Keflavíkur hittast fyrir heimaleiki liðsins í félagsheimilinu í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Fyrir leikinn gegn KR voru um 100 manns á staðnum, spjölluðu um leikinn framundan og renndu niður ljúffengum grilluðum borgurum. Að þessu sinni mættu þeir félagar í Heiður og spiluðu nokkur lög.
Við hvetjum stuðningsmenn til að láta sjá sig en húsið opnar um klukkutíma fyrir hvern leik og um leið er kveikt á grillinu. Ekki þarf að skrá sig í klúbb eða slíkt, það er nóg að mæta!