Fréttir

Knattspyrna | 12. september 2008

Fjölnir - Keflavík á laugardag kl. 16:00

Laugardaginn 13. september leika Fjölnir og Keflavík í 19. umferð Landsbankadeildar karla.  Leikurinn fer fram á heimavelli Fjölnismanna í Grafarvogi og hefst kl. 16:00.  Fyrir leikinn er Keflavík í efsta sæti deildarinnar með 40 stig en lið Fjölnis er í 8. sæti með 22 stig.  Það þarf ekki að taka fram að Keflavíkurliðið er í harðri baráttu við FH um sigur í deildinni en Fjölnismenn hafa ekki að miklu að keppa úr þessu.  Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar þeir Einar Sigurðsson og Oddbergur Eiríksson en eftirlitsmaður KSÍ verður Páll Júlíusson.

Leikurinn á mánudag verður aðeins annar deildarleikur Keflavíkur og Fjölnis enda er Fjölnisliðið að leika í efstu deild í fyrsta sinn og í raun stutt síðan félagið fór að láta til sín taka í efri deildum Íslandsmótsins.  Fyrr í sumar mættust liðin í 8. umferð Landsbankadeildarinnar og þá vann Fjölnir 2-1 á Sparisjóðsvellinum.  Guðmundur Steinarsson skoraði mark Keflavíkur en Gunnar Már Guðmundsson og Ólafur Páll Snorrason skoruðu fyrir Fjölni.

Liðin hafa einu sinni mæst í bikarkeppninni en það var árið 2005.  Liðin mættust þá í 32 liða úrslitum á Fjölnisvelli og vann Keflavík nauman 4-3 sigur.  Guðmundur Steinarsson skoraði tvö mörk og þeir Hólmar Örn Rúnarsson og Stefán Örn Arnarson eitt hvor.  Atli Guðnason skoraði tvö marka Fjölnis og Tómas Leifsson eitt.