Fjölnir - Keflavík á laugardag kl. 16:00
Fjölnir og Keflavík mætast í 19. umferð Pepsi-deildarinnar laugardaginn 29. ágúst. Leikur liðanna fer fram á heimavelli Fjölnismanna og hefst kl. 16:00. Fyrir leikinn er Keflavík í 5.-6. sæti deildarinnar með 25 stig og siglir lygnan sjó um miðja deild. Fjölnismenn eru hins vegar í 11. sætinu með 13 stig og virðast ekki líklegir til að halda sæti sínu í deildinni. Það má þó reikna með því að heimamenn leggi allt í sölurnar í fallbaráttunni og okkar menn hljóta að mæta ákveðnir til leiks eftir dapurt gengi í síðustu leikjum. Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar Jóhann Gunnar Guðmundsson og Guðmundur Ársæll Guðmundsson og eftirlitsmaður KSÍ verður Eyjólfur Ólafsson.
Keflavík og Fjölnir hafa leikið þrjá leiki í efstu deild en Fjölnismenn léku í fyrsta skipti í þeirri deild síðasta sumar. Þá varð niðurstaðan 1-2 útisígur í báðum leikjum liðanna. Fjölnismenn unnu á Sparisjóðsvellinum með mörkum frá Gunnari Má Guðmundssyni og Ólafi Páli Snorrasyni eftir að Guðmundur Steinarsson hafði komið Keflavík. Í seinni leiknum í Grafarvoginum kom Gunnar Már Guðmundsson heimamönnum yfir en Guðmundur Steinarsson og Jóhann B. Guðmundsson tryggðu okkar mönnum sigur. Fyrr í sumar mættust liðin í 8. umferð deildarinnar og þá unnu okkar menn 3-1 sigur á heimavelli. Magnús Þórir Matthíasson, Magnús Þorsteinsson og Haukur Ingi Guðnason skoruðu fyrir Keflavík en enn var það Gunnar Már Guðmundsson sem skoraði fyrir Fjölnismenn úr vítaspyrnu.
Liðin hafa einu sinni mæst í bikarkeppninni en það var árið 2005. Liðin mættust þá í 32 liða úrslitum á Fjölnisvelli og vann Keflavík nauman 4-3 sigur. Guðmundur Steinarsson skoraði tvö mörk og þeir Hólmar Örn Rúnarsson og Stefán Örn Arnarson eitt hvor. Atli Guðnason skoraði tvö marka Fjölnis og Tómas Leifsson eitt.