Fréttir

Knattspyrna | 16. maí 2006

Fjölskylduklúbburinn grillar á fyrsta leik

Fjölskylduklúbburinn verður með grillveislu fyrir meðlimi sína við Íþróttahúsið við Sunnubraut fyrir leikinn á móti Víkingi á föstudaginn og hefjast herlegheitin kl. 18:00.  Félagsmenn og þeir sem vilja ganga í hópinn eru hvattir til að mæta tímanlega og fá sér í gogginn, pylsur og annað meðlæti.  Allir eiga að mæta í félagsbúningum sínum og nýjir félagar fá sína búninga í grillinu.  Þá fá félagar sæti saman á vellinum og verða þau merkt fyrir fyrsta leikinn á föstudag kl. 19:15 á móti Víkingum.


Það var líf og fjör hjá Fjölskylduklúbbnum í fyrra.
(Mynd:
Jón Örvar Arason)