Fjórir í U-16 ára úrtaki
Fjórir leikmenn úr Keflavík hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U-16 ára liðs karla um næstu helgi. Þetta eru þeir Júlíus Davíð Júlíusson, Ólafur Ingi Jóhannsson, Sigurbergur Bjarnason og Stefán Alexander Ljubicic. Þeir leika allir með 3. flokki og voru allir í liði 4. flokks Keflavíkur sem varð Íslandsmeistari síðasta sumar.
Fá þeir bestu óskir um frábært gengi.
Myndin með fréttinni er frá Víkurfréttum en þar er 4. flokkur að taka við Íslandsmeistarabikarnum.