Fjórir í U-21 árs hópnum
Fjórir leikmenn Keflavíkur eru í æfingahópi U-21 árs landsliðsins. Eyjólfur Sverrisson hefur valið 45 leikmenn sem munu æfa í Kórnum um helgina. Frá Keflavík verða Árni Freyr Ásgeirsson, Bojan Stefán Ljubicic, Magnús Þór Magnússon og Viktor Smári Hafsteinsson í hópnum.
Við óskum þeim félögum góðs gengis.