Fréttir

Knattspyrna | 8. maí 2005

Flott Herrakvöld

Herrakvöld Knattspyrnudeildar Keflavíkur var haldið í Stapa s.l. miðvikudagskvöld.  Um150 manns sóttu kvöldið sem tókst með miklum ágætum.  Boðið var upp á herramannsmat og er engu logið upp á þá í Stapanum þegar matnum þeirra er hrósað, hann var mjög góður og vel útilátinn.. Að borðhaldi loknu fór hefðbundin dagskrá í gang.  Formaður Knattspyrnudeildar Rúnar V. Arnarson bauð gesti velkomna og ræddi í nokkrum orðum um horfurnar í boltanum framundan, að lokum skipaði hann Halldór Einarsson, „Henson“ veislustjóra og þar með hófst tveggja tíma dagskrá sneisafull af gríni og gleði.  Mikið var hlegið og kvöldið verður lengi í minnum haft.  Þeir fóru allir á kostum, Össur, Ómar Ragnarsson og Rögnvaldur gáfaði gerði allt vitlaust.  Rögnvaldur gáfaði hefur ekki áður skemmt á Suðurnesjum en á örugglega eftir að koma hingað aftur.  Þá var hefðbundið happdrætti og málverkauppboð.  Uppboðshaldari var Magnús Eyjólfsson og fór drengurinn hreinlega á kostum, þar fór kunnáttumaður sem vissi hvað hann var að gera, þekkti listamennina og sögu þeirra sem gerði uppboðið lifandi og skemmtilegt.  Öll verkin sem til sölu voru seldust og kaupendur gerðu góð kaup í góðum verkum.  Tíu góðir happdrættisvinningar voru dregnir út og í lokin gaf Desmond Barrow tvo ferðavinninga, flug fyrir 2, 4 stjörnu hótel í 2 nætur og miða á leik að eigin vali í Ensku úrvalsdeildina eða meistaradeildina næsta keppninstímabil.  Tveir svona pakkar voru boðnir upp og duttu tveir herramenn í lukkupottinn og fengu ferðirnar á góðu verði.  Herrakvöldinu lauk um miðnætti og fór prúðmannlega fram.

Athugið að fleiri myndir frá herrakvöldinu birtast hér fljótlega.