Fréttir

Knattspyrna | 29. desember 2008

Flugeldasala Knattspyrnudeildar

Við minnum á flugeldasölu Knattspyrnudeildar Keflavíkur sem er að venju á Iðavöllum 7.  Þar er að finna mikið úrval af flugeldum og boðið upp á margs konar tilboð og flugeldapakka.  Það er svo að sjálfsögðu mikið úrvalsfólk sem sér um afgreiðslu og ráðleggur viðskiptavinum um kaup á réttu græjunum.  Flugeldasalan er opin 28.-30. desember kl. 10:00-22:00 og á gamlársdag kl. 10:00-16:00.  Við vonumst til að sjá sem flesta þar og treystum á íbúa Reykjanesbæjar að styðja vel við bakið á deildinni eins og undanfarin ár.


Snillingarnir Jón Ólafs, Óli Bjarna og Þórir afgreiða.


Úrvalið er ótrúlegt.


Ánægðir viðskiptavinir.