Fréttir

Flugeldasala Knattspyrnudeildar
Knattspyrna | 18. desember 2012

Flugeldasala Knattspyrnudeildar

Knattspyrnudeild Keflavíkur verður með flugeldasölu  í ár eins og undanfarin 25 ár.  Að þessu sinni verður salan í gamla K-HÚSINU Hringbraut 108 en þar höfum við ekki verið í ein 10 ár.  Umsjónarmaður sölunnar lofar því að flugeldasalan verði sú glæsilegasta frá upphafi.  Við bjóðum að sjálfsögðu besta verðið eins og áður.
 
Flugeldasalan verður opin 28., 29. og 30 desember kl. 10:00-22:00 og á gamlársdag kl. 10:00-16:00.
 
Við keyrum heim til þeirra sem þess óska.