Flugeldasala Knattspyrnudeildar
Við minnum á flugeldasölu Knattspyrnudeildar. Við erum á sama stað og undanfarin ár eða á Hringbraut 108.
Fullt hús af góðum vörum á fínu verði. Þess má geta að stærstu terturnar sem verða í boði eða „bombur ársins“ eru nefndar eftir nokkrum af þekktustu knattspyrnuköppum félagins í gegnum tíðina.
Flugeldasalan verður opin:
mánudag 28. desember kl. 16:00 - 22:00
þriðjudag 29. desember kl. 10:00 - 22:00
miðvikudag 30. desember kl. 10:00 - 22:00
fimmtudag 31. desember kl. 10:00 - 16:00
Við hvetjum stuðningsmenn til að kíkja við og skoða úrvalið enda er flugeldasalan mikilvægur hluti af fjáröflunarstarfi deildarinnar.
Hermann varaformaður og Jón formaður með stærstu tertuna þetta árið.