Flugeldasala Knattspyrnudeildar á Iðavöllum
Flugeldasala Knattspyrnudeildar Keflavíkur opnar í dag, miðvikudaginn 28. desember, og í tilefni dagsins verður 20% opnunarafsláttur af öllum vörum. Flugeldasalan er á Iðavöllum 7 og að þessu sinni er boðið upp á mikið af nýjum vörum en í ár flytur deildin í fyrsta sinn alla flugelda inn sjálf. Opið verður kl. 10:00-22:00 og kl. 10:00-16:00 á gamlársdag. Það er svo að sjálfsögðu mikið úrvalsfólk sem sér um afgreiðslu og ráðleggur viðskiptavinum um kaup á réttu græjunum.
Það þarf ekki að taka fram að flugeldasalan er mikilvægur liður í fjáröflun Knattspyrnudeildar og hefur verið það undanfarin 25 ár. Við vonumst til að sjá sem flesta þar og treystum á íbúa Reykjanesbæjar að styðja vel við bakið á deildinni eins og undanfarin ár.