Flugeldasala Knattspyrnudeildar í fullum gangi
Við minnum á flugeldasölu Knattspyrnudeildar sem er að Iðavöllum 7. Þar er að finna mikið úrval af flugeldum og boðið upp á margs konar tilboð og flugeldapakka. Það er svo að sjálfsögðu mikið úrvalsfólk sem sér um afgreiðslu og ráðleggur viðskiptavinum um kaup á réttu græjunum. Flugeldasalan er opin kl. 10:00-22:00 dagana 28.-30. desember og kl. 10:00-16:00 á gamlársdag. Við vonumst til að sjá sem flesta þar og treystum á íbúa Reykjanesbæjar að styðja vel við bakið á deildinni eins og undanfarin ár.