Fréttir

Knattspyrna | 2. desember 2011

fótbolti.net-mótið í janúar

Nú styttist í fyrsta mót vetrarins en fótbolti.net-mótið fer fram í janúar.  Okkar menn unnu síðasta mót og eiga því titil að verja.  Keflavík verður í riðli með Breiðablik, FH og ÍA en í hinum riðlinum verða Grindavík, ÍBV, Selfoss og Stjarnan.  Efstu lið riðlanna leika síðan til úrslita og önnur lið um sæti.  Leikdagar hafa verið ákveðnir (með fyrirvara um breytingar) og spilar Keflavík við Breiðablik þann 14. janúar, við FH 21. janúar og gegn ÍA 28. janúar.  Tveir fyrstu leikirnir verða í Reykjaneshöllinni en leikurinn gegn ÍA í Akraneshöllinni.  Eins og áður sagði getur dagskráin breyst en þá er bara að fara að hlakka til...


Okkar menn með sigurlaunin úr fótbolta.net-mótinu í fyrra.