Fréttir

Fótbolti.net-mótið í janúar
Knattspyrna | 5. desember 2013

Fótbolti.net-mótið í janúar

Eins og undanfarin ár tekur Keflavík þátt í Fótbolti.net-mótinu sem fer fram í janúar.  Átta lið taka þátt og er þeim skipt í tvo riðla.  Keflavík leikur í riðli með FH, Breiðablik og Grindavík en í hinum riðlinum leika Stjarnan, ÍBV, ÍA og Haukar.  Þegar riðlakeppni lýkur leika efstu lið í hvorum riðli til úrslita og önnur lið um sæti.  Úrslitaleikirnir fara fram 31. janúar og 1. febrúar.  Búið er að gera drög að leikjaniðurröðun og samkvæmt henni eru leikir Keflavíkur þessir.  Athugið að þessi áætlun getur breyst.

Laugardagur 11. janúar
10:00 Keflavík - Breiðablik (Reykjaneshöllin)

Laugardagur 18. janúar
10:00 Keflavík - FH (Reykjaneshöllin)

Föstudagur 24. janúar
21:30 Grindavík - Keflavík (Reykjaneshöllin)