Frá Aðalfundi
Aðalfundur Knattspyrnudeildar var haldinn 28. janúar og var nokkuð vel mætt. Jón G. Benediktsson var einn í kjöri til formanns en tvær breytingar urðu á stjórn deildarinnar. Hjördís Baldursdóttir og Ólafur Birgir Bjarnason gengu úr stjórninni og voru þeim þökkuð vel unnin störf í þágu deildarinnar. Þeir Margeir Vilhjálmsson og Kristján Jóhannsson komu inn í varastjórn í stað Hjördísar og Ólafs.
Á fundinum kom fram að rekstur Knattspyrnudeildar er í góðu jafnvægi og hefur deildin verið rekin réttu megin við núllið. Að neðan má sjá stjórn deildarinnar eins og hún er nú skipuð.
Aðalstjórn: Formaður: Jón G. Benediktsson Varaformaður: Hermann Helgason Gjaldkeri: Karl Finnbogason Ritari: Gunnar Oddsson Meðstjórnandi: Þorleifur Björnsson |
Varastjórn: Björgvin Ívar Baldursson Ingvar Georgsson Kristján Jóhannsson Margeir Vilhjálmsson Stefán Guðjónsson |