Frá aðalfundi Knattspyrnudeildar
Aðalfundur Knattspyrnudeildar var haldinn á dögunum en þar var öll stjórn deildarinnar endurkjörin. Þorsteinn Magnússon, formaður Knattspyrnudeildar, sagði frá því helsta í starfsemi deildarinnar en þar kom fram að rekstur deildarinnar er í jafnvægi. Hann þakkaði öllum þeim sem hafa starfað fyrir deildina fyrir þeirra framlag og ræddi um næstu skref varðandi uppbyggingu knattspyrnunnar í Keflavík, innan vallar sem utan. Þá minntist Þorsteinn Hafsteins Guðmundssonar sem lést á síðasta ári.