Frá Aðalfundi Sportmanna
Aðalfundur Sportmanna var haldinn laugardaginn 1. apríl. Því miður var fámennt á fundinum en vonandi hafa félagsmenn ekki haldið að fundarboðið væri aprílgabb. Á fundinum var stjórn félagsins öll endurkjörin en hana skipa Gísli M. Eyjólfsson formaður, Karl Finnbogason gjaldkeri, Magnús Torfason meðstjórnandi og Þorsteinn Ólafsson ritari. Formaður flutti skýrslu stjórnar og rætt var um fjármál og önnur innri málefni félagsins. Þá var rætt um samstarf við aðra stuðningshópa Keflavíkur og var ákveðið að leita eftir samstarfi við þá um að samnýta aðstöðu og uppákomur á heimaleikjum. Rúnar Arnarson formaður knattspyrnudeildar var á fundinum og sagði frá stöðu mála hjá deildinni, fjörugar umræður urðu um gang mála þar og voru menn bjartsýnir á keppnistímabilið. Þá er bara að vona að starfsemi Sportmanna verði öflug í sumar og við óskum köppunum góðs gengis.
Myndir: Jón Örvar Arason
Karl, Sveinn og Rúnar.
Rúnar lætur ljós sitt skína.
Jón og Gísli.
Fjórir af fimm West Ham-aðdáendum á Suðurnesjum voru á fundinum.
Jón, Gísli, Rúnar og Sveinn og þá vantar bara Einar Skafta.
Maggi hress en Steini eitthvað þreyttur.