Fréttir

Knattspyrna | 13. desember 2005

Frá hraðmóti 4. flokks

Hraðmót var haldið s.l. laugardag í 4. flokki kvenna í Reykjaneshöll.  Leikið var í 11 manna liðum og leiktíminn 1x27mín.  Mótið hófst kl. 8:00 og lauk um kl. 13:00.  Þátttökulið auk Keflavík voru GRV, Valur, Afturelding og Haukar.  Öll umgjörð í kringum mótið tókst mjög vel og voru þjálfarar liðanna mjög ánægðir að fá mót á þessum árstíma og mættu önnur félög sem hafa aðstöðuna til að halda svona mót taka okkur til fyrirmyndar.

Röð liðanna:
1. GRV
2. Valur
3. Keflavík
4. Haukar
5. Afturelding

Svo óheppilega vildi til að Íslandsmót 4. flokks innanhúss var haldið sama dag og við héldum hraðmótið.  Okkar mótsdagur var fyrir löngu ákveðinn en Fram, sem var umsjónaraðili innanhússmótsins, töldu sig ekki geta breytt leikdegi svo við létum slag standa og mættum eftir hádegi í mótið.  Þrátt fyrir þreytu í okkar stelpum stóðu þær sig vel, unnu tvo leiki og töpuðu einum sem var reyndar úrslitaleikurinn í riðlinum.  Þær lentu því í öðru sæti.


Lið 4. flokks sem keppti á Íslandsmótinu innanhúss.