Fréttir

Knattspyrna | 5. ágúst 2009

Fram - Keflavík á fimmtudag kl. 19:15

Keflavík heimsækir Framara á Laugardalsvöll fimmtudaginn 6. ágúst kl. 19:15 í 15. umferð Pepsi-deildarinnar.  Fyrir leikinn eru okkar menn í 4. sæti deildarinnar með 24 stig en Fram er í 7. sæti með 15 stig.  Dómari leiksins verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, aðstoðardómarar þeir Smári Stefánsson og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson en eftirlitsmaður KSÍ er Jón Sigurjónsson.  Við hvetjum fólk til að mæta í Laugardalinn en okkar mönnum hefur gengið vel þar gegn Fram undanfarin ár og hafa leikir þessara liða yfirleitt verið hinir fjörugustu.

Keflavík og Fram hafa leikið 81 leik í efstu deild.  Sá fyrsti fór fram árið 1958 og lauk með 2-2 jafntefli þar sem Högni Gunnlaugsson og Hólmbert Friðjónsson skoruðu fyrir Keflavík.  Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin; Keflavík hefur unnið 31 leik en Fram 24 og liðin hafa skilið jöfn 26 sinnum.  Markatalan er 121-105, okkar liði í vil.  Stærsti sigur Framara var 4-0 árið 1979 en Keflavík hefur tvisvar unnið með 5 marka mun; 5-0 árið 1965 og 6-1 árið 2004.  Mesti markaleikur liðanna var þó 6-5 heimasigur Keflavíkur 1964 en það ár varð Keflavík einmitt Íslandsmeistari í fyrsta sinn.  Átta leikmenn sem í dag leika með Keflavík hafa skorað gegn Fram í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað sex mörk, Hörður Sveinsson fjögur, Jóhann B. Guðmundsson, Hólmar Örn Rúnarsson og Haukur Ingi Guðnason þrjú og þeir Símun Samuelsen, Magnús Þorsteinsson og Stefán Örn Arnarson hafa gert eitt mark hver gegn Fram.

Liðin hafa leikið 11 leiki í bikarkeppninni og þar hafa Framarar betur.  Þeir hafa sigrað 7 sinnum en Keflavík 4 sinnum.  Markatalan er 13-17 fyrir Fram.  Hólmar Örn Rúnarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn Fram. 

Liðin mættust fyrr í sumar í 4. umferð deildarinnar og fór sá leikur fram á Sparisjóðsvellinum.  Keflavík vann þá 1-0 og gerði Jóhann B. Guðmundsson eina mark leiksins.

Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir bæði lið þessi í gegnum árin.  Þar má nefna Ragnar heitinn Margeirsson og Guðmund Steinarsson.

Úrslit leikja Fram og Keflavíkur á heimavelli Framara hafa orðið þessi undanfarin ár:

2008 Fram - Keflavík 0-2 Þórarinn Kristjánsson 2
2007 Fram - Keflavík 2-2 Guðmundur Steinarsson
Þórarinn Kristjánsson
2005 Fram - Keflavík 2-3 Stefán Örn Arnarson
Hörður Sveinsson
Hólmar Örn Rúnarsson
  2004

Fram - Keflavík

1-6 Hólmar Örn Rúnarsson 2
Hörður Sveinsson 2
Þórarinn Kristjánsson
Guðmundur Steinarsson
  2002

Fram - Keflavík

1-1 Magnús Þorsteinsson
  2001

Fram - Keflavík

5-3 Þórarinn Kristjánsson
Zoran Ljubicic
Haukur Ingi Guðnason
  2000

Fram - Keflavík

0-0
  1999

Fram - Keflavík

2-0
  1998

Fram - Keflavík

2-3 Þórarinn Kristjánsson 2
Gunnar Oddsson
1997

Fram - Keflavík

3-1 Guðmundur Oddsson



Úrkippa úr Morgunblaðinu í júlí árið 1995 þar sem fjallað er um
leik Fram og Keflavíkur á Laugardalsvelli.  Keflavík vann leikinn 4-2.