Fram - Keflavík á mánudag kl. 19:15
Keflavík heimsækir Framara á Laugardalsvöll mánudaginn 14. júlí kl. 19:15. Með leiknum lýkur fyrri umferð Landsbankadeildarinnar í ár. Fyrir leikinn eru okkar menn í 1.-2. sæti deildarinnar ásamt FH með 22 stig og ætla að sjálfsögðu að ljúka fyrri umferð mótsins á toppnum. Fram er í 6.-7. sæti með 15 stig og siglir lygnan sjó um miðja deild. Dómari leiksins verður Valgeir Valgeirsson, aðstoðardómarar þeir Einar Sigurðsson og Frosti Viðar Gunnarsson en eftirlitsmaður KSÍ er Eyjólfur Ólafsson.
Nokkur forföll eru í okkar liði en Símun Samuelsen tekur út leikbann vegna fjögurra gulra spjalda. Þá eru nokkrir leikmenn tæpir vegna meiðsla en þeir Jón Gunnar, Hans og Guðmundur Mete gátu ekki tekið þátt í síðasta leik.
Keflavík og Fram hafa leikið 78 leiki í efstu deild. Sá fyrsti fór fram árið 1958 og lauk með 2-2 jafntefli þar sem Högni Gunnlaugsson og Hólmbert Friðjónsson skoruðu fyrir Keflavík. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin; Keflavík hefur unnið 29 leiki en Fram 23 og liðin hafa skilið jöfn 26 sinnum. Markatalan er 117-103, okkar liði í vil. Stærsti sigur Framara var 4-0 árið 1979 en Keflavík hefur tvisvar unnið með 5 marka mun; 5-0 árið 1965 og 6-1 árið 2004. Mesti markaleikur liðanna var þó 6-5 heimasigur Keflavíkur 1964 en það ár varð Keflavík einmitt Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Fimm leikmenn sem í dag leika með Keflavík hafa skorað gegn Fram í efstu deild; Þórarinn Kristjánsson hefur skorað átta mörk, Guðmundur Steinarsson sjö, Hólmar Örn Rúnarson og Hörður Sveinsson þrjú hvor og Magnús Þorsteinsson hefur skorað eitt mark gegn Fram.
Liðin hafa leikið 11 leiki í bikarkeppninni og þar hafa Framarar betur. Þeir hafa sigrað 7 sinnum en Keflavík 4 sinnum. Markatalan er 13-17 fyrir Fram. Hólmar Örn Rúnarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn Fram en það var eina mark leiksins þegar liðin mættust síðast í bikarkeppninni, í 16 liða úrslitum árið 2004.
Keflavík og Fram mættust tvisvar í Landsbankadeildinni síðasta sumar eins og lög gera ráð fyrir. Keflavík vann fyrri leik liðanna á Keflavíkurvelli. Lokatölur urðu 2-1 þar sem Þórarinn Kristjánsson og Baldur Sigurðsson skoruðu fyrir Keflavík en Hjálmar Þórarinsson fyrir Fram. Seinni leikurinn fór fram á Laugardalsvellinum og lauk honum með 2-2 jafntefli. Guðmundur Steinarsson og Þórarinn Kristjánsson gerðu mörk Keflavíkur en Hjálmar Þórarinsson og Jónas Grani Garðarsson mörk heimamanna.
Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir bæði þessi lið í gegnum árin. Þar má nefna Ragnar heitinn Margeirsson og svo lék Guðmundur Steinarsson eitt tímabil fyrir Fram. Hans Mathiesen lék með Fram síðustu þrjú ár en gekk til liðs við Keflavík í vor.
Úrslit leikja Fram og Keflavíkur á heimavelli Framara hafa orðið þessi undanfarin ár:
2007 | Fram - Keflavík | 2-2 | Guðmundur Steinarsson Þórarinn Kristjánsson | |
2005 | Fram - Keflavík | 2-3 | Stefán Örn Arnarson Hörður Sveinsson Hólmar Örn Rúnarsson | |
2004 |
Fram - Keflavík |
1-6 | Hólmar Örn Rúnarsson 2 Hörður Sveinsson 2 Þórarinn Kristjánsson Guðmundur Steinarsson | |
2002 |
Fram - Keflavík |
1-1 | Magnús Þorsteinsson | |
2001 |
Fram - Keflavík |
5-3 | Þórarinn Kristjánsson Zoran Ljubicic Haukur Ingi Guðnason | |
2000 |
Fram - Keflavík |
0-0 | ||
1999 |
Fram - Keflavík |
2-0 | ||
1998 |
Fram - Keflavík |
2-3 | Þórarinn Kristjánsson 2 Gunnar Oddsson | |
1997 |
Fram - Keflavík |
3-1 | Guðmundur Oddsson | |
1995 |
Fram - Keflavík |
2-4 | Jóhann B. Guðmundsson 2 Róbert Sigurðsson Kjartan Einarsson |
Úrkippa úr Morgunblaðinu í júlí árið 1995 þar sem fjallað er um
leik Fram og Keflavíkur á Laugardalsvelli. Keflavík vann leikinn 4-2.