Fram - Keflavík á sunnudag kl. 19:15
Keflavík heimsækir Framara á Laugardalsvöll sunnudaginn 18. september kl. 19:15 í 20. umferð Pepsi-deildarinnar. Fyrir leikinn eru okkar menn í 7.-9. sæti deildarinnar með 21 stig en Fram er í 11. sæti með 15 stig. Bæði liðin eru því að berjast við þennan margumtalaða falldraug og úrslit leiksins munu ráða miklu um framhaldið hjá liðunum. Þetta er því sannkallaður sex stiga leikur og full ástæða fyrir stuðningsmenn okkar að fjölmenna í Laugardalinn og hvetja strákana til dáða. Dómari leiksins verður Valgeir Valgeirsson, aðstoðardómarar þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Smári Stefánsson en eftirlitsmaður KSÍ er Ingi Jónsson.
Keflavík og Fram hafa leikið 85 leiki í efstu deild. Sá fyrsti fór fram árið 1958 og lauk með 2-2 jafntefli þar sem Högni Gunnlaugsson og Hólmbert Friðjónsson skoruðu fyrir Keflavík. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin; Keflavík hefur unnið 32 leiki en Fram 26 og liðin hafa skilið jöfn 27 sinnum. Markatalan er 124-115, okkar liði í vil. Stærsti sigur Framara var 5-0 árið 2009 og Keflavík hefur tvisvar unnið með 5 marka mun; 5-0 árið 1965 og 6-1 árið 2004. Mesti markaleikur liðanna var þó 6-5 heimasigur Keflavíkur 1964 en það ár varð Keflavík einmitt Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Fjórir leikmenn sem í dag leika með Keflavík hafa skorað gegn Fram í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur gert sjö mörk, Jóhann B. Guðmundsson þrjú, Magnús Þorsteinsson hefur gert tvö mörk og Arnór Ingvi Traustason eitt.
Liðin hafa leikið 11 leiki í bikarkeppninni og þar hafa Framarar betur. Þeir hafa sigrað 7 sinnum en Keflavík 4 sinnum. Markatalan er 13-17 fyrir Fram.
Liðin mættust fyrr í sumar í Pepsi-deildinni og þá á Nettó-vellinum. Keflavík vann þann leik þar sem sem Arnór Ingvi Traustason gerði eina mark leiksins.
Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir bæði lið þessi í gegnum árin. Þar má nefna Ragnar heitinn Margeirsson, Paul McShane, Jón Gunnar Eysteinsson, Andra Stein Birgisson, Guðmund Steinarsson og Helga Björgvinsson.
Úrslit leikja Fram og Keflavíkur á heimavelli Framara hafa orðið þessi undanfarin ár:
2010 | Fram - Keflavík | 2-1 | Sjálfsmark | |
2009 | Fram - Keflavík | 5-0 | ||
2008 | Fram - Keflavík | 0-2 | Þórarinn Kristjánsson 2 | |
2007 | Fram - Keflavík | 2-2 | Guðmundur Steinarsson Þórarinn Kristjánsson | |
2005 | Fram - Keflavík | 2-3 | Stefán Örn Arnarson Hörður Sveinsson Hólmar Örn Rúnarsson | |
2004 |
Fram - Keflavík |
1-6 | Hólmar Örn Rúnarsson 2 Hörður Sveinsson 2 Þórarinn Kristjánsson Guðmundur Steinarsson | |
2002 |
Fram - Keflavík |
1-1 | Magnús Þorsteinsson | |
2001 |
Fram - Keflavík |
5-3 | Þórarinn Kristjánsson Zoran Ljubicic Haukur Ingi Guðnason | |
2000 |
Fram - Keflavík |
0-0 | ||
1999 |
Fram - Keflavík |
2-0 |
Arnór Ingvi fagnar sigurmarkinu gegn Frömurum fyrr í sumar.